Goddur fjallar um feril Gísla B.

Næstkomandi sunnudag, 10. ágúst, kl. 15-16 mun Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur) halda fyrirlestur í Ketilhúsinu um starfsferil Gísla B. Björnssonar í grafískri hönnun síðastliðna fimm áratugi. Goddur er prófessor við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands og hefur um árabil stundað rannsóknir á íslensku myndmáli og táknmyndum í auglýsingum. Fyrirlesturinn er haldinn í tilefni af síðustu dögum yfirlitssýningar Gísla B. í Ketilhúsinu, Fimm áratugir í grafískri hönnun, sem lýkur 10. ágúst. Gísli er einn atkvæðamesti grafíker íslenskrar hönnunarsögu og hefur komið að markaðs- og ímyndarmálum fjölda fyrirtækja og stofnana á Íslandi og búið til mörg af þekktustu vörumerkjum landsins. Hann setti á fót auglýsingastofu Gísla B. Björnssonar eftir nám í Þýskalandi 1961 og ári síðar stofnaði hann sérdeild í auglýsingateiknun við Myndlista- og handíðaskólann sem í dag er braut grafískrar hönnunar í Listaháskóla Íslands þar sem hann kenndi óslitið í fimm áratugi. Aðgangur á fyrirlesturinn er ókeypis.