GÓMS - opnun á morgun í Deiglunni

Á morgun laugardaginn, 28. júní, opnar GÓMS tvíeykið sýninguna Tvívirkni Í Deiglunni. GÓMS skipa þeir Georg Óskar og Margeir Dire sem hafa bundist sjónrænum böndum í einlægu bræðralagi og hér birtast dreggjar karlmennskunnar á sinn fegursta hátt. Í verkum tvíeykisins má glögglega sjá að allar hugmyndir hafa ákveðið vægi og hlaðast saman á einum myndfleti sem endurspeglar andrúmsloft og undirliggjandi samhengi hlutanna. Útkoman er aðferðafræði sem kallast ?absorbism? eða ?óbeislað hugmyndaflæði?. Á sýningunni renna tveir hugarheimar saman í einn undir einkunnarorðunum ?Gera meira, blaðra minna!?

Sýningin stendur til 31. ágúst og er aðgangur ókeypis.