Heimsókn Vigdísar

Vigdís Finnbogadóttir kom í heimsókn á Listasafnið um síðustu helgi og sá þá portrettverk af sér eftir Stephen Lárus Stephen í fyrsta sinn. Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins tók vel á móti þeim Vigdísi og Stephen Lárusi og skapaðist skemmtileg umræða um verkið. Vigdís var einkar ánægð og gaf sér góðan tíma til að virða það fyrir sér sem og sýningu Listasafnsins, Íslensk samtíðarportrett ? mannlýsingar á 21. öld, og sýningu Gísla B., Fimm áratugir í grafískri hönnun, í Ketilhúsinu. Sannarlega ánægjuleg heimsókn.