Hotel Terminus

Á sýningu Victors Ocares, Hotel Terminus, sem nú stendur yfir í Deiglunni leikur hann sér að hugtökum á borð við óvissa og þekking og veltir fyrir sér hvort mörkin þar á milli séu í rauninni jafn skýr og af er látið.

Victor Ocares útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2013. Listsköpun hans er lituð dulhyggju sem leitar meðal annars fanga í heimspeki og vísindum. Á sýninguni notast hann við margvíslega miðla eins og tónverkt , skúltúra og myndverk.

Sýningin stendur til 5. október og er opin þriðjudaga-sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.