Hugleiðing um skipulag og hönnun

Hugleiðing um skipulag og hönnun
Árni Árnason.

Þriðjudaginn 2. febrúar kl. 17 heldur Árni Árnason innanhúsarkitekt fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Hugleiðing um skipulag og hönnun. Þar mun hann fjalla um skipulag frá sjónarhóli neytandans og einnig eigin hönnun á liðnum árum. 

Árni Árnason er útskrifaður sem tækniteiknari frá Iðnskólanum í Reykjavík og sem húsgagna- og innanhússarkitekt frá Skolen for brugskunst í Kaupmannahöfn. Hann tók síðar kennsluréttindi frá Háskólanum á Akureyri. Árni stofnaði ásamt öðrum FORM arkitektastofu en vinnur núna við kennslu, smíðar og hönnun.

Fyrirlesturinn er sá þrettándi í röð fyrirlestra sem haldnir eru á hverjum þriðjudegi í Listasafninu, Ketilhúsi í allan vetur. Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins og Myndlistafélagsins. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Anita Hirlekar, Claudia Mollzahn, Kristín Margrét Jóhannsdóttir, Klængur Gunnarsson og Freyja Reynisdóttir, Mille Guldbeck og Lisa Pacini og Christine Istad.