Hugmynd verður sýning

Í dag, þriðjudaginn 21. september, kl. 17 heldur Íris Ólöf Sigurjónsdóttir forstöðumaður Byggðasafnsins Hvols á Dalvík fyrirlestur í Ketilhúsinu á Akureyri undir yfirskriftinni Hugmynd verður sýning. Þar fjallar hún um sýninguna Myndlist minjar / Minjar myndlist sem nú stendur yfir í Listasafninu á Akureyri, en Íris Ólöf er sýningarstjóri sýningarinnar. Fyrir utan almenn safnastörf fæst hún við hönnun á eigin textílum og hefur hannað allar sýningar Byggðasafnsins Hvols auk þess að setja upp sýningar í öðrum rýmum. Íris Ólöf er menntuð í textíl og textílforvörslu frá Osló og London en hún starfaði áður hjá Árbæjarsafni í Reykjavík.

Á sýningunni Myndlist minjar / Minjar myndlist gefur annars vegar að líta muni markaða af sögu, menningu og andblæ liðins tíma og hins vegar ný listaverk unnin af ellefu listamönnum á aldrinum 28-70 ára sem boðið var að vinna þau út frá munum Byggðasafnsins.

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er sá fjórði í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar. Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri og myndlistarmennirnir Aðalsteinn Þórsson, Stefán Boulter og Guðmundur Ármann Sigurjónsson.

Myndlist minjar / Minjar myndlist stendur til 7. desember og er opin alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.