í drögum / Prehistoric Loom IV að ljúka

í drögum / Prehistoric Loom IV að ljúka
Verk: Klængur Gunnarsson.

Framundan eru síðustu dagar samsýningarinnar í drögum / Prehistoric Loom IV sem staðið hefur í Listasafninu, Ketilhúsi síðan 23. janúar, en henni lýkur næstkomandi sunnudag.  Sýningin skoðar teikninguna sem tímabil í ferli listsköpunar, nánast hulið ferli sem markar andartak milli hugsunar og framkvæmdar. Í þessu óræða rými má greina bergmál persónulegra og faglegra tengsla sem einkenna samfélög listamanna. í drögum / Prehistoric Loom IV er ávöxtur þeirra sambanda sem mynduðust hjá meistaranemum við Glasgow School of Art í Skotlandi árið 2014.

Sýningin var fyrst sett upp í No Toilet Gallery í Seoul í Suður-Kóreu, því næst í Yada Shimin Gallery í Nagoya í Japan og nú síðast á listahátíðinni Glasgow Open House Art Festival, vorið 2015. Segja má að sýningin, eða sýningarröðin,
sé lífræn í formi þar sem hún breytist í hverri borg. Nýir listamenn bætast við og koma þannig með ný innlegg í hið sídýpkandi samtal. Að þessu sinni sýna 26 listamenn víðs vegar að úr heiminum, þar af sjö íslenskir.

Listamenn: 

Kelli Sims, Sasha Panyuta, Fanny Wickström, Selma Hreggviðsdóttir, Marysia Gacek, Katrina Vallé, Vigdis Storsveen, Ying Cui, Johnathan Cook, Jack Cheetham, Emily McFarland, Heejoon Lee, Saejin Choi, Alexandra Sarkisian, Lauren Hall, Kirsty Palmer, Guo-Liang Tan, Elísabet Brynhildardóttir, Aniara Oman, Malie Robb, Simon Buckley, Anna Hrund Másdóttir, Klængur Gunnarsson, Maria Toumazou, Ólöf Helga Helgadóttir, Freyja Reynisdóttir, Guðmundur Thoroddsen.

Sýningarstjórar: Elísabet Brynhildardóttir, Selma Hreggviðsdóttir og Katrina Vallé.