Krækiberjasíder og spjall í Ketilhúsinu

Í dag, laugardaginn 13. september, klukkan 14-16 mun Þóra Þórisdóttir og starfsfólk Urta Islandica taka á móti gestum í Ketilhúsinu þar sem nú stendur yfir sýningin Skapandi greinar. Boðið verður upp á krækiberjasíder og spjall um leið og kíkt verður ofan í berjalitunarpotta og lyktað af eimuðum vallhumli og spánarkerfli. Aðgangur er ókeypis - allir velkomnir.