Kynningarfundur haldinn á Listasafninu

Á kynningarfundi sem haldinn var í Listasafninu á Akureyri í dag var dagskrá ársins 2018 og komandi starfsár kynnt. Einnig var farið í gegnum þær framkvæmdir sem nú standa yfir á Listasafninu og þær útskýrðar. Í lok fundarins var undirritaður nýr samstarfssamningur Listasafnsins og Icelandair Hotels Akureyri og Air Iceland Connect. Það var Sigrún Björk Sigurðardóttir, hótelstjóri Icelandair Hotels Akureyri, og Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins, sem undirrituðu samninginn. Prentaðri dagskrá ársins var í dag dreift í öll hús á Akureyri.

Byggingar Listasafnsins sameinaðar

Árið 2018 markar mikilvæg tímamót fyrir Listasafnið á Akureyri þar sem þá eru liðin 25 ár frá stofnun þess. Það er einkar viðeigandi að á þessum tímamótum skuli gamalt og gott loforð verða efnt og safnið fái á afmælisárinu efstu hæð gamla Mjólkursamlagsins til afnota. Eftir endurbætur og stækkun verða byggingarnar tvær sem Listasafnið hefur haft til umráða, annars vegar gamla Mjólkursamlag KEA og hins vegar Ketilhúsið, sameinaðar með tengibyggingu og munu þá mynda eina heild. Glæsilegir sýningarsalir á efstu hæðinni verða opnaðir 17. júní þar sem fjölbreyttar og spennandi sýningar verða í boði í framtíðinni.

Nýr inngangur með aðgengi fyrir hreyfihamlaða verður tekinn í notkun ásamt safnbúð og kaffihúsi. Í nýju safni verður einnig stórbætt aðstaða fyrir safnfræðslu og skapandi starf með börnum og fullorðnum. Fræðsla, fyrirlestrar, leiðsagnir og safnkennsla eru meðal þess sem Listasafnið hefur lagt aukna áherslu á undanfarin misseri og verður engin breyting þar á.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir verða áfram stór þáttur í fræðslustarfi Listasafnsins en þeir eru settir upp í samvinnu við Verkmenntaskólann á Akureyri, Myndlistarfélagið, Gilfélagið og Háskólann á Akureyri. Þeir eru sem fyrr haldnir á hverjum þriðjudegi kl. 17-17.40 yfir vetrartímann.

Sjö sýningar verða opnaðar samdægurs

Sýningaárið 2018 byrjar með tveimur opnunum laugardaginn 24. febrúar kl. 15. Á miðhæð Ketilhússins má þá sjá hina árlega samsýningu starfandi listamanna, skólabarna og Leikfangasýningarinnar í Friðbjarnarhúsi, Sköpun bernskunnar, en á svölunum opnar Helga Sigríður Valdemarsdóttir sýninguna Kyrrð. Við taka sýningar á verkum Bergþórs Morthens, Rof, nemenda listnáms- og hönnunarbrautar VMA og útisýningin Fullveldið endurskoðað. Listasafninu verður lokað í maí og fram til 17. júní þegar nýtt safn verður formlega tekið í notkun. Þá verða opnaðar hvorki meira né minna en sjö sýningar samdægurs: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Hugleiðing um orku; Sigurður Árni Sigurðsson, Hreyfðir fletir; Aníta Hirlekar, Bleikur og grænnSvipir – valin verk úr safneign Listasafns ASÍ, Hjördís Frímann og Magnús Helgason; HugmyndirÚrval – valin verk úr safneign Listasafnsins á Akureyri og yfirlitssýningin Frá Kaupfélagsgili til Listagils.

25 ára afmæli og Iceland Airwaves

Haldið verður upp á 25 ára afmæli safnsins í lok ágúst en nánari útlistun á því verður kynnt síðar. Gjörningahátíðin A! er á sínum stað í dagskránni og í ár verður Listasafnið í fyrsta sinn þátttakandi í Iceland Airwaves á Akureyri. Yfirlitssýningar á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar, Heima, og Arnar Inga, Lífið er LEIK-fimi, ásamt einkasýningu franska myndlistarmannsins Ange Leccia, Hafið, loka svo árinu með komandi hausti.

Helstu bakhjarlar Listasafnsins á Akureyri eru: Norðurorka, ÁsprentAir Iceland ConnectGeimstofanIcelandair Hotels AkureyriRub23 og Stefna.