Leiðsögn á Alþjóðlega safnadaginn

Í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum, mánudaginn 18. maí næstkomandi, verður boðið upp á leiðsögn kl. 15 um samsýninguna Sköpun bernskunnar 2020 í Listasafninu á Akureyri. Þetta er síðasti dagur sýningarinnar og eins og aðra daga í maí er enginn aðgangseyrir er innheimtur.

Sköpun bernskunnar er nú sett upp í sjötta sinn og er liður í safnfræðslunni, með það markmið að gera sýnilegt, og örva, skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára.

Þátttakendur hverju sinni eru börn og starfandi myndlistarmenn, oftast einn karl og ein kona. Þátttakendurnir unnu verk sem falla að þema sýningarinnar, sem að þessu sinni er hús, heimili, skjól, með áherslu á hamfarahlýnun af mannavöldum og áhrif hennar á búsetuskilyrði. Einnig eru til sýnis líkön af íslenskum neyðarskýlum sem kanadísku listamennirnir Natalie Lavoie og Steve Nicoll bjuggu til og sýndu, þegar þau dvöldu í gestavinnustofu Gilfélagsins í nóvember 2018.

Í ár komu fimm ára leikskólabörn, þrjátíu og fjögur talsins í tveimur hópum, á Listasafnið á Akureyri og unnu myndverk undir leiðsögn tveggja starfandi myndlistarkvenna, Jonnu - Jónborgar Sigurðardóttur og Gunnhildar Helgadóttur, en sú síðarnefnda er annar tveggja myndlistarmanna sem eiga verk á sýningunni. Aðrir þátttakendur eru Hrafnkell Sigurðsson myndlistarmaður, Leikfangasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Brekkuskóli, Lundarskóli og Naustaskóli ásamt leikskólanum Hólmasól. Sýningin er styrkt af Safnasjóði.

Sýningarstjóri: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.