Leiðsögn og sýningalok

Fimmtudaginn 9. nóvember kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á síðustu leiðsögnina um sýningar Rúrí, Jafnvægi-Úr Jafnvægi, og Friðgeirs Helgasonar, Stemning, í Listasafninu, Ketilhúsi. Báðum sýningum lýkur næstkomandi sunnudag. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.