Leiðsögn á fimmtudaginn

Fimmtudaginn 17. janúar kl. 16-16.30 verður boðið upp á leiðsögn um sýningu Hjördísar Frímann og Magnúsar Helgasonar, Hugmyndir.

Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna og einstaka verk.