Leiðsögn á fimmtudaginn

Leiðsögn á fimmtudaginn
Georg Óskar, Somtimes.

Fimmtudaginn 2. febrúar kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi um yfirlitssýningu á verkum Nínu Tryggvadóttur, Litir, form og fólk, og sýningu Georgs Óskars, Fjögur ár. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.