Leiðsögn á fimmtudaginn

Leiðsögn á fimmtudaginn
Einar Falur Ingólfsson.

Fimmtudaginn 9. mars kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi um sýningar Einars Fals Ingólfssonar, Griðastaðir, og Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar, 360 dagar og málverk, sem báðar voru opnaðar síðastliðinn laugardag. Hlynur Hallsson, safnstjóri, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.