Leiðsögn á hverjum fimmtudegi

Í dag, fimmtudaginn 5. júní, kl. 12:00 býður Sjónlistamiðstöðin upp á leiðsögn í Ketilhúsinu um sýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun. Þá mun Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, leiða gesti um sýninguna og fræða þá um verk og störf Gísla. Viku síðar eða fimmtudaginn 12. júní verður leiðsögn um sumarsýningu Listasafnsins á Akureyri, Íslensk samtíðarportrett ? mannlýsingar á 21. öld, sem opnar næstkomandi laugardag.

Um vikulegar leiðsagnir er að ræða sem verða til skiptis á hvorum stað á hverjum fimmtudegi kl. 12:00 Nánari upplýsingar um dagkrána í sumar má sjá hér að neðan:

  • Ketilhúsið, fimmtudagur 5. júní kl.12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 12. júní, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett - mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 19. júní kl.12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 26. júní, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett - mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 3. júlí kl.12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 10. júlí, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett - mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 17. júlí kl.12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 24. júlí, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett - mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 24. júlí kl.12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 31. júlí, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett - mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 7. ágúst kl.12.00: Síðasta leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 14. ágúst, kl. 12.00: Síðasta leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett - mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 21. ágúst kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 28. ágúst kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi.