Leiðsögn á morgun um Skapandi greinar

Á morgun, fimmtudaginn 11. september, kl. 12 verður leiðsögn í Ketilhúsinu um sýningu Urta Islandica, Skapandi greinar, sem samanstendur af myndlist, gjörningum, vöruhönnun, matvælaiðnaði og verslun. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir fræðslufulltrúi mun þá taka á móti gestum og fræða um sýninguna. Aðgangur er ókeypis.