Leiðsögn í Ketilhúsinu

Leiðsögn í Ketilhúsinu í dag, fimmtudaginn 30. október, kl. 12.15 - 12.45. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir fræðslufulltrúi tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningu Véronique Legros, Landiða - Fata morgana. Sýningunni lýkur næstkomandi sunnudag og því er um síðustu leiðsögnina að ræða. Aðgangur er ókeypis.