Leiðsögn í Ketilhúsinu á fimmtudag kl. 12.15

Boðið verður upp á leiðsögn í Ketilhúsinu á morgun, fimmtudag, kl. 12.15
Þar er nú til sýnis afrakstur listaverkefnisins RÓT en verkefnið hefur staðið yfir s.l. tvær vikur. Að þessu sinni sjá listamenn sem tóku þátt í verkefninu um leiðsögnina ásamt starfsmanni Listasafnsins á Akureyri.

RÓT sameinar listamenn úr ólíkum listgreinum í gerð verka sem eru þróuð á staðnum með ólíkum áherslum. Hver dagur hófst á hugflæði þar sem allar hugmyndir voru viðraðar þangað til rótin fannst. Hugmyndin að verkefninu kviknaði einn vetrardag á sameiginlegri vinnustofu þriggja listamanna; Freyju Reynisdóttur, Karólínu Baldvinsdóttur og Jónínu Bjargar Helgadóttur. Þær langaði að nýta margföldunaráhrifin sem gott samstarf framkallar. Nánari upplýsingar má sjá á www.rot-project.com.

Sýningin stendur til 19. júlí og er opin þriðjudaga – sunnudaga kl. 10-17.