Leiðsögn í Ketilhúsinu í dag

Leiðsögn verður í Ketilhúsinu í dag, fimmtudaginn 27. nóvember, kl. 12.15 ? 12.45. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir fræðslufulltrúi tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningu Bryndísar Kondrup, Af jörðu - De Terrae. Aðgangur er ókeypis.

Á sýningunni, sem fjallar um holdgervingu og hverfuleika mannsins, fléttar Bryndís saman verkum unnum í mismunandi miðla; málverkum, hlutum, vídeóverkum og röntgenmyndum úr eigin líkama.

Undanfarin ár hefur Bryndís sökkt sér ofan í pælingar um lífið og tilveruna gegnum málverkið. Hið táknræna mál landakorta fléttast oft inn í verk hennar og vísar þannig bæði til efnislegra og huglægra staðsetninga. Á sýningunni Af jörðu ? De Terrae heldur Bryndís áfram vegferð sinni um lendur tilverunnar og bætir hljóðum og fyrirbærum inn í viðfangsefnið.

Bryndís Kondrup lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og framhaldsnámi í Kaupmannahöfn þar sem hún bjó hátt í áratug. Einnig stundaði hún nám í listfræði við HÍ og LHÍ. Bryndís hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis.

Sýningin er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17 og stendur til 7. desember. Aðgangur er ókeypis.