Leiðsögn í Ketilhúsinu í dag kl. 12

Í dag, fimmtudaginn 19. júní, kl. 12.00 býður Sjónlistamiðstöðin upp á leiðsögn í Ketilhúsinu um sýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, mun leiða gesti um sýninguna og fræða þá um verk og störf Gísla. Um vikulegar leiðsagnir er að ræða sem verða til skiptis á hvorum stað á hverjum fimmtudegi kl. 12.00 Nánari upplýsingar um dagkrána í sumar má sjá hér að neðan:

  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 26. júní, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett - mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 3. júlí kl.12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 10. júlí, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett - mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 17. júlí kl.12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 24. júlí, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett - mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 24. júlí kl.12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 31. júlí, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett - mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 7. ágúst kl.12.00: Síðasta leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
  • Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 14. ágúst, kl. 12.00: Síðasta leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett - mannlýsingar á 21. öld.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 21. ágúst kl. 12.00: Leiðsögn um um sýningu Þóru Þórisdóttur, Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi.
  • Ketilhúsið, fimmtudagur 28. ágúst kl. 12.00: Leiðsögn um um sýningu Þóru Þórisdóttur, Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi.