Leiðsögn í Listasafninu

Fimmtudaginn 18. febrúar kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri um sýningar Jóns Laxdal Halldórssonar, ...úr rústum og rusli tímans, og Baldvins Ringsted, Snarstefjun, annar hluti: Bárujárnsárin, sem var opnuð um síðustu helgi. Haraldur Ingi Haraldsson verkefnastjóri Listasafnsins tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar. Aðgangur er ókeypis.