Leiðsögn í Listasafninu

Fimmtudaginn 12. janúar kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu um sýningar Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur, Sýn í þokunni, og Joan Jonas, Eldur og saga, 1985. Hlynur Hallsson, safnstjóri, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar. Aðgangur er ókeypis.