Leiðsögn um Fólk / People

Fimmtudaginn 31. mars kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu um ljósmyndasýninguna Fólk / People, en þar sýna sjö ólíkir listamenn verk sín. Á meðal þeirra er Hörður Geirsson sem tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna ásamt Guðrúnu Pálínu Guðmundsdóttur safnfulltrúa. Aðgangur er ókeypis.

Listamennirnir eru Barbara Probst, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Hrefna Harðardóttir, Hörður Geirsson, Ine Lamers og Wolfgang Tillmans. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson. Sýningin stendur til 29. maí.