Leiðsögn um Haust

Fimmtudaginn 24. september kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn um samsýninguna Haust í Listasafninu á Akureyri, en þar sýna 30 norðlenskir listamenn. Á meðal þeirra eru Guðmundur Ármann Sigurjónsson og Heiðdís Hólm en þau munu ásamt Hlyni Hallssyni, safnstjóra Listasafnsins, taka á móti gestum og fræða þá um sýninguna og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.

Listamennirnir sem taka þátt í haustsýningunni vinna með ólíka miðla og aðferðir, hér gefur að líta málverk, innsetningar, videóverk, leirverk, skúlptúra, ljósmyndir, skjáverk, textílverk, teikningar og bókverk.

Listamennirnir eru: Arna Valsdóttir, Arnar Ómarsson, Baldvin Ringsted, Bergþór Morthens, Björg Eiríksdóttir, Eiríkur Arnar Magnússon, Freyja Reynisdóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Guðrún Þórisdóttir, Gunnhildur Helgadóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Heiðdís Hólm, Hekla Björt Helgadóttir, Joris Rademaker, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Klængur Gunnarsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Marina Rees, Ragnheiður Þórsdóttir, Rannveig Helgadóttir, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Rósa Júlíusdóttir, Sam Rees, Stefán Boulter, Unnur Óttarsdóttir, Victor Ocares, Þórarinn Blöndal, Þórgunnur Oddsdóttir, Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Þóra Sigurðardóttir. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson.