Leiðsögn um Sköpun bernskunnar 2016

Fimmtudaginn 7. apríl kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi um sýninguna Sköpun bernskunnar 2016. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir fræðslufulltrúi og sýningarstjóri tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna. Aðgangur er ókeypis.

Þetta er þriðja sýningin undir heitinu Sköpun bernskunnar. Hún er sett upp til þess að örva skapandi starf og hugsun allra skólabarna, á aldrinum tveggja til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru börn, starfandi listamenn og Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi. Sköpun bernskunnar er því samvinnuverkefni í stöðugri þróun og er hver sýning sjálfstæð og sérstök. Sýningin hefur vakið verðskuldaða athygli og er einstök hvað varðar samvinnu myndlistarmanna og barna. Einnig verða sýnd myndverk frá námskeiði sem haldið var í tengslum við Sköpun bernskunnar 2015 þar sem leiðbeinendur voru Erwin van der Werve og Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir.

Þátttakendur í ár eru: Hríseyjarskóli, leikskólarnir Hólmasól, Sunnuból og Pálmholt, grunnskólarnir Naustaskóli og Síðuskóli, Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi og listamennirnir Áki Sebastian Frostason, Anne Balanant, Björg Eiríksdóttir, Elsa Dóróthea Gísladóttir, Egill Logi Jónasson og James Earl Ero Cisneros Tamidles. Sýningarstjóri: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.