Leiðsögn um sköpun bernskunnar 2017

Fimmtudaginn 4. maí kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi um Sköpun bernskunnar 2017, samsýningu listamanna og skólabarna. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.