Leiðsögn um sýningu Mireyu Samper

Fimmtudaginn 16. júlí kl. 12.15, verður boðið upp á leiðsögn um sýningu Mireyu Samper í Listasafninu á Akureyri.

Á sýningunni er að finna innsetningu, tví- og þrívíð verk eftir Mireyu ásamt verkum eftir japönsku gestalistamennina Tomoo Nagaii sem samdi hljóðverk með innsetningunni, og vídeó verk eftir Higuma Haruo unnið uppúr samvinnu hans og Mireyu með sömu innsetningu. Innsetningin er einskonar „íhugunarrými“ – gestum sýningarinnar býðst að fara inn í rýmið, setjast eða leggjast og gefst þar tækifæri til íhugunar. Þá er einnig japanska gjörningalistakonan Kana Nakamura þátttakandi í sýningunni.

Sýningin stendur til 16. ágúst og er opin þriðjudaga til sunnudaga  kl. 10-17. Aðgangur er ókeypis.