Listasumar hefst á föstudaginn

Listasumar á Akureyri hefst með pompi og prakt á morgun, föstudaginn 12. júní, kl. 17 og stendur yfir til 6. september. Listasumar var umgjörð fyrir listviðburði á Akureyri í tæpa tvo áratugi, sem og vettvangur fyrir listamenn til að koma sér á framfæri. Það verður nú endurvakið með svipuðum áherslum. 

Á opnuninni mun Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins á Akureyri segja nokkur vel valinn orð, umvafinn handverki kvenna, sem mun prýða Listagilið. Í framhaldinu taka við tvennir tónleikar; annars vegar mun Þjóðlistahátiðin Vaka bjóða upp á síðdegistóna í Deigluna og hins vegar er gestum og gangandi boðið að taka þátt í Tilraunakenndum sólarhring undir merkjum tón- og myndlistarhátíðarinnar Yms, frá kl. 18 til 18.

Yfir 70 atriði eru komin á dagskrá Listasumars og er þá dagskráin alls ekki tæmandi því mögulegt er að bæta við viðburðum allt til loka tímabilsins.

Listasumri lýkur með A! Gjörningahátíð sem er nýjasta viðbótin í flóru listahátíða landsins. Hátíðin verður haldin í fyrsta sinn dagana 3. - 6. september 2015 og er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, Lókal – alþjóðlegrar leiklistarhátíðar í Reykjavík, Leikfélags Akureyrar, Reykjavík Dance Festival og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Á hátíðinni verður lögð áhersla á sviðslistir og gjörninga þar sem myndræn framsetning og nýstárleg notkun á rými og miðlum er í fyrirrúmi.