Listasafnið þátttakandi í Listahátíð í Reykjavík

Listasafnið á Akureyri tekur þátt í Listahátíð í Reykjavík þegar Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir fremur gjörninginn Mannlegt landslag í Listasafninu, Ketilhúsi kl. 15 laugardaginn 30. maí.

Mannlegt landslag er tilvistarstúdía og skoðun á því að vera í andartakinu og því að vera í sköpun/sköpunarferli undir áhrifum af stað og stund, og í sambandi/samtali við áhorfendur innan rýmisins. Að setja sig í aðstæður og skoða nánar val sem er tekið og hvert það leiðir mann.

Listamaðurinn spinnur á staðnum og börn sem taka þátt í gjörningnum hafa ákveðnu verkefni að fylgja í sambandi við hreyfingar listamannsins. Börnin eru að koma fram í fyrsta skipti og hluti af verkinu er að sjá hvernig þau bregðast við umhverfinu, stað og tíma sem og spuna listamannsins sem er einnig móðir þeirra.

Gjörningurinn er hluti af sýningunni Sköpun bernskunnar sem opnar í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi 9. maí næstkomandi.