Ljóðalestur í Listasafninu

Ljóðalestur í Listasafninu
Sóknarskáld.

Miðvikudaginn 29. ágúst kl. 17 verður boðið upp á ljóðalestur með Sóknarskáldum í Gili kaffihúsi í anddyri Listasafnsins.

Sóknarskáld er félagsskapur tveggja ungra skálda í Eyjafjarðarsókn sem vilja blása lífi í ljóðið og bjóða lýðnum í birginn. Karólína Rós og Sölvi Halldórsson flytja eigin ljóð um ástir, sundlaugar og umferðina. Aðgangur er ókeypis.