Margmiðlun og stafrænn arkitektúr

Margmiðlun og stafrænn arkitektúr
Jón Þór Sigurðsson.

Þriðjudaginn 13. október kl. 17 heldur Jón Þór Sigurðsson margmiðlunarhönnuður fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Margmiðlun og stafrænn arkitektúr. Þar fjallar hann um flest sem tengist margmiðlun s.s.  vídeóeftirvinnslu, forritun og tengingu þrívíddar við gagnvirka hönnun. Einnig verður fjallað um stafrænan arkitektúr og nýjustu framfarir í þeim geira. Aðgangur er ókeypis. 

Jón Þór Sigurðsson er sjálfstæður margmiðlunarhönnuður sem stundaði nám í Myndlistaskólanum á Akureyri, IED í Barcelona og ELISAVA í Barcelona. Hann kennir nú Photoshop, vefsíðuhönnun og vídeóeftirvinnslu í Myndlistaskólanum á Akureyri.

Fyrirlesturinn er sá þriðji í röð fyrirlestra sem haldnir verða á hverjum þriðjudegi í Listasafninu, Ketilhúsi í allan vetur. Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Á meðal fyrirlesara vetrarins eru Ragnheiður Þórsdóttir, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Þórdís Jóhannesdóttir, Þorlákur Axel Jónsson, Haraldur Ingi Haraldsson, Margrét Elísabet Ólafsdóttir og Þórhallur Kristjánsson.