Margrét Elísabet Ólafsdóttir fjallar um Haust

Í tilefni af síðustu opnunardögum samsýningarinnar Haust í Listasafninu á Akureyri mun Margrét Elísabet Ólafsdóttir listfræðingur taka á móti áhugasömum gestum næstkomandi laugardag 17. október kl. 15. og ganga með þeim um sýninguna. Aðgangur er ókeypis en til sölu verður sýningarskrá. Sýningunni lýkur sunnudaginn 18. október.

Sýningin endurspeglar þá fjölbreyttu flóru myndlistar sem unnið er að á Norðurlandi. Efnistök, hugmyndir og aðferðir eru ólík og á sýningunni gefur að líta teikningar, málverk, skúlptúra, myndbandsverk, bókverk, ljósmyndaverk og textílverk, svo eitthvað sé nefnt.

Listamennirnir eru: Arna Valsdóttir, Arnar Ómarsson, Baldvin Ringsted, Bergþór Morthens, Björg Eiríksdóttir, Eiríkur Arnar Magnússon, Freyja Reynisdóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Guðrún Þórisdóttir, Gunnhildur Helgadóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Heiðdís Hólm, Hekla Björt Helgadóttir, Joris Rademaker, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Klængur Gunnarsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Marina Rees, Ragnheiður Þórsdóttir, Rannveig Helgadóttir, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Rósa Júlíusdóttir, Sam Rees, Stefán Boulter, Unnur Óttarsdóttir, Victor Ocares, Þórarinn Blöndal, Þórgunnur Oddsdóttir, Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Þóra Sigurðardóttir. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson.