Nútímadans í Ketilhúsinu í dag kl. 16 - ókeypis aðgangur

Í dag, fimmtudaginn, 21. ágúst, kl. 16 stendur Listhús í Fjallabyggð, í samvinnu við Listasafnið á Akureyri, fyrir dansgjörningi í Ketilhúsinu. Þá mun Rebecca Wong Dance Group frá Hong Kong sýna Þegar tíminn haltrar (When Time Limps) sem er tilraunakenndur og rýmistengdur dansgjörningur þar sem dansorkan breytist eftir rýminu sem dansað er í.

Dansinn er innblásinn af málverkum og dagbókum Salvadors Dalí og er leið listamannsins í gegnum sköpunarferlið rakin. Með hjálp tónlistarinnar lifna málverkin við og verða að skuggum á vegg sem leiða okkur inn í undarlega og fjarstæðukennda veröld.

Listamennirnir sem sýna eru nútímadansararnir Rebecca Wong Pik-Kei, Wayson Poon Wai-shun og King Lo King-San.

Sýningartími er 50 mínútur. Aðgangur er ókeypis. Allir velkomnir.