Ókeypis leiðsögn í dag kl. 12 í Ketilhúsinu

Í dag, fimmtudaginn 11. september, kl. 12 verður leiðsögn í Ketilhúsinu um sýningu Urta Islandica, Skapandi greinar, sem samanstendur af myndlist, gjörningum, vöruhönnun, matvælaiðnaði og verslun. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir fræðslufulltrúi mun taka á móti gestum og fræða þá um sýninguna. Aðgangur er ókeypis.