Opið á uppstigningardag

Opið verður í Listasafninu, Ketilhúsi á uppstigningardag kl. 12-17. Þar má sjá sýninguna Sköpun bernskunnar sem opnaði síðastliðinn laugardag. Vegna uppsetningar á útskriftarsýningu Myndlistaskólans, Sjónmennt 2015, verður Listasafnið lokað fram að opnun næstkomandi laugardag kl. 15.

Þema Sköpun bernskunnar er börn og sköpun þeirra. Hugmyndin er að blanda saman list starfandi myndlistarmanna, sem fást við bernskuna í víðum skilningi, og verkum eftir börn og leikföngum þeirra. Stefnt er að því að sýningin verði árviss viðburður með nýjum þátttakendum ár hvert.

Þátttakendur sýningarinnar: Bergþór Morthens og börn hans Vilmundur Emil og Indíana, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hjördís Frímann, Hrönn Einarsdóttir, Ólafur Sveinsson, Rósa Júlíusdóttir og Karl Guðmundsson, Samúel Jóhannsson, Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Erwin van der Werve og börn þeirra Logi og Ylva, Glerárskóli, Oddeyrarskóli, Brekkuskóli, Hlíðarskóli, Naustaskóli, Giljaskóli, Lundarskóli, Síðuskóli, Tröllaborgir, Iðavöllur, Naustatjörn, Kiðagil, Hlíðaból, Hulduheimar, Lundarsel og Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi.