Opið fyrir umsóknir í gestavinnustofur

Opið er fyrir umsóknir um dvöl í gestavinnustofum í Listasafninu á Akureyri. Hægt er að sækja um vinnustofudvöl á tímabilinu frá nóvember 2020 - desember 2021, 2 - 8 vikur í senn. Umsóknarfrestur er til 15. september 2020.

Senda þarf inn umsókn á listak@listak.is sem inniheldur eftirfarandi upplýsingar:

  • Stutt ferilskrá.
  • Upplýsingar um heimasíðu eða sýnishorn af nýlegum verkum.
  • Stuttan texta um hvernig viðkomandi ætlar að nýta sér gestavinnustofudvölina (hámark 200 orð)
  • Upplýsingar um hvaða vinnustofu er óskað eftir og hversu lengi og hvaða tímabil kæmi til greina. 

Úthlutunarnefnd fer yfir umsóknirnar og verða umsækjendur látnir vita innan mánaðar. Gestalistamenn sem verða valdir hafa viku til þess að samþykkja boðið og aðra viku til þess að greiða staðfestingagjald, kr. 20.000. Full greiðsla þarf að berast þremur mánuðum fyrir upphaf dvalar. 

Vinnustofa 01 kr. 28.000 - fyrir vikuna

Vinnustofan er 22 m², svefnherbergi 22 m², með sameiginlegu eldhúsi/stofu, baðherbergi og sturtu. Innifalið er þráðlaust net, rafmagn og hiti, þvottavél, handklæði, rúmföt, sængur og koddar.  Aukagestur sem deilir vinnustofu/herbergi greiðir 5.600 ISK fyrir vikuna. 

Vinnustofa 02 kr.26.000 - fyrir vikuna

Vinnustofa 22 m², svefnherbergi 18 m² með með sameiginlegu eldhúsi/stofu, baðherbergi og sturtu. Þráðlaust net, rafmagn, hiti, þvottavél, handklæði, rúmföt, sængur og koddar.  Aukagestur sem deilir vinnustofu/herbergi greiðir kr. 5.200 fyrir vikuna.  

Vinnuherbergi 03 kr. 22.000 - fyrir vikuna

Svefnherbergi / vinnuherbergi, 15 m² án vinnustofu, með sameiginlegu eldhúsi/stofu og sameiginlegu baðherbergi og sturtu. Þráðlaust net, rafmagn og hiti, þvottavél, handklæði og rúmföt sængur og koddar.  Aukagestur sem deilir vinnuherbergi greiðir kr. 4.400 fyrir vikuna. 

Mögulegt er að setja upp litla sýningu í vinnustofunni á meðan á dvölinni stendur.