Opnun í Deiglunni laugardaginn 27. apríl

LIST ÁN LANDAMÆRA

Laugardaginn 27. apríl kl. 14.30 opnar sýningin Lista án landamæra í sýningarsalnum Deiglunni sem staðsett er í Listagilinu á Akureyri. Á sýningunni, sem hópurinn Geðlist stendur fyrir, verður boðið upp á ljóðlist, stólahönnun, útskurð, málverk og margt fleira.

List án landamæra er listahátíð fjölbreytileikans, árlegur viðburður sem miðar að því að kynna verk fólks með fötlun og koma á samstarfi milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Áhersla hátíðarinnar er á sýnileika ólíkra einstaklinga og frjóa samvinnu. Sýnileiki hefur enda bein áhrif á jafnrétti á öllum sviðum. List án landamæra er hátíð þess mögulega, hátíð margbreytni og tækifæra fyrir alla í því góða samfélagi sem við byggjum.  Fjölmargir hæfileikaríkir listamenn taka þátt í hátíðarhöldunum og á undanförnum árum hefur hún þróast í skemmtilegar áttir. Æ fleiri eru nú meðvitaðir um gildi hennar í listalífinu, bæði þátttakendur og gestir.

Sýningin stendur til 12. maí og er opin alla daga nema mánudaga og þriðjudaga kl. 14-17. Aðgangur er ókeypis.