Opnun í Ketilhúsi 10. ágúst kl. 15

Laugardaginn 10. ágúst kl. 15 opnar Þórdís Alda glæsilega og áhugaverða sýningu í Ketilhúsinu á Akureyri. Þórdís sækir efnivið sinn og hugmyndir  í ,,dótakassa samtímans? með öllum þeim efnum, hlutum, tækjum, tólum og klæðum sem er hið raunverulega, daglega sjónarspil stórs hluta mannkyns.

Sjónlistamiðstöðin er opin ALLA DAGA NEMA MÁNUDAGA frá kl. 9-5 og er aðgangur ókeypis.