Opnun, listasmiðjur og leiðsögn á Akureyrarvöku

Opnun, listasmiðjur og leiðsögn á Akureyrarvöku
Gunnar Kr.

Á Akureyrarvöku, laugardaginn 27. ágúst, verður nóg um að vera í Listasafninu og sýningar þess opnar til kl. 22. Dagskráin hefst kl. 10 um morguninn þegar Listasafnið, Ketilhús opnar á sínum hefðbundna sumartíma en þar stendur nú yfir sýningin Arkitektúr og Akureyri. Listakonurnar Jonna og Brynhildur Kristinsdóttir halda svo listasmiðju fyrir krakka á öllum aldri í tengslum við sýninguna, kl. 14.30-16.30. Byggingar úr pappír og af öllum stærðum og gerðum eru viðfangsefni smiðjunnar. Aðgangur ókeypis.

Gunnar Kr. opnar sýninguna Formsins vegna í Listasafninu kl. 15. Ávörp flytja Hlynur Hallsson, safnstjóri, og Logi Már Einarsson, arkitekt og dúó tvennd spilar létta tóna.

Myndlist Gunnars Kr. einkennist af slagkrafti og þunga sem birtist með fjölbreyttum hætti. Hann hefur t.d. teiknað biksvartar blýsólir og logskorið stálblóm. Undanfarin misseri hefur Gunnar notað fislétt og viðkvæmt hráefni til myndgerðar – pappír – sem hann mótar, sker, litar og raðar saman uns tilætluðum áhrifum er náð. Í spennunni milli formrænnar tjáningar listamannsins annars vegar og hráefnisins sem hann notar hins vegar, er feiknarleg orka. Verk Gunnars Kr. líkjast um margt náttúrunni sjálfri; þau eru sterk, form endurtaka sig og fegurðin ríkir – þótt hún sé á stundum ógnvekjandi. Kröftug en þó viðkvæm.

Myndlistarferill Gunnars Kr. spannar þrjátíu ár og hefur hann víða komið við. Á fjölmörgum sýningum hefur hann sýnt málverk, skúlptúra, teikningar og vatnslitamyndir. Gunnar býr og starfar að list sinni á Akureyri. Sýningarstjóri er Joris Rademaker.

Í tilefni sýningarinnar kemur út sýningarskrá með textum eftir Hlyn Hallsson og Joris Rademaker og ljóðum eftir Aðalstein Svan Sigfússon.

Sýningunni Arkitektúr og Akureyri lýkur næstkomandi sunnudag og því verður boðið upp á síðustu leiðsögnina um sýninguna kl. 17 í Listasafninu, Ketilhúsi. Helga Björg Jónasardóttir, sýningarstjóri, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna.

Verið velkomin á Listasafnið á Akureyrarvöku!