Samsýning 27 alþjóðlegra listamanna

Samsýning 27 alþjóðlegra listamanna
Mynd: Katrina Vallé.

Laugardaginn 23. janúar kl. 15 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi samsýningin í drögum / Prehistoric Loom IV en þar sýna 27 listamenn víðs vegar að úr heiminum, þar af sjö íslenskir. Sýningin er ávöxtur þeirra sambanda sem mynduðust hjá meistaranemum við Glasgow School of Art í Skotlandi árið 2014 og var fyrst sett upp í No Toilet Gallery í Seoul í Suður-Kóreu, því næst í Yada Shimin Gallery í Nagoya í Japan og nú síðast á listahátíðinni Glasgow Open House Art Festival, vorið 2015.

í drögum / Prehistoric Loom skoðar teikninguna sem tímabil í ferli listsköpunar, nánast hulið ferli sem markar andartak milli hugsunar og framkvæmdar. Í þessu óræða rými má greina bergmál persónulegra og faglegra tengsla sem einkenna samfélög listamanna. Segja má að sýningin, eða sýningarröðin, sé lífræn í formi þar sem hún breytist í hverri borg; nýir listamenn bætast við og koma þannig með ný innlegg í hið sídýpkandi samtal.

Listamenn: Kelli Sims, Sasha Panyuta, Fanny Wickström, Selma Hreggviðsdóttir, Marysia Gacek, Katrina Vallé, Vigdis Storsveen, Ying Cui, Johnathan Cook, Jack Cheetham, Emily McFarland, Heejoon Lee, Saejin Choi, Alexandra Sarkisian, Lauren Hall, Kirsty Palmer, Guo-Liang Tan, Elísabet Brynhildardóttir, Aniara Oman, Malie Robb, Simon Buckley, Anna Hrund Másdóttir, Klængur Gunnarsson, Maria Toumazou, Ólöf Helga Helgadóttir, Freyja Reynisdóttir, Guðmundur Thoroddsen.

Sýningarstjórar: Elísabet Brynhildardóttir, Selma Hreggviðsdóttir og Katrina Vallé.