Síðasta leiðsögn og sýningarlok

Fimmtudaginn 18. ágúst kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á síðustu leiðsögnina um sýninguna Nautn / Conspiracy of Pleasure í Listasafninu. Hlynur Hallsson sýningarstjóri og Guðný Kristmannsdóttir listakona taka á móti gestum og fræða þá um sýninguna. Aðgangseyrir er 1.000 krónur og gildir jafnframt á sýninguna Arkitektúr og Akureyri í Listasafninu, Ketilhúsi.

Nautn / Conspiracy of Pleasure lýkur næstkomandi sunnudag 21. ágúst en sýningin verður opin kl. 10-17 alla daga fram að lokun.

Hin ýmsu lögmál og birtingarmyndir nautnar eru útgangspunktur sýningarinnar. Sex listamenn sýna ný verk, þar sem þeir fjalla um hugtakið, hver frá sínu sjónarhorni og forsendum, og efna til orðræðu um hlutverk nautnar í heimspekilegu, listrænu og veraldlegu samhengi. Í verkunum má sjá þráhyggjukenndar birtingarmyndir neysluhyggju og kynlífs í samtímanum, holdið í myndlistinni, mannslíkamann sem táknrænt fyrirbæri og innblástur eða einfaldlega hina frumstæðu nautn sem oft fylgir listsköpun, glímunni við efni og áferð, áráttu og blæti.

Hvar liggja mörkin á milli þess að leggja eðlilega og manneskjulega rækt við unað og ánægju annars vegar og hins vegar þess að gangast þessum eiginleikum hömlulaust á vald? Hvenær verður eitthvað að blæti? Hver er munurinn á munúð og ofgnótt, erótík og klámi, fegurð og kitsch, löngun og fíkn, metnaði og græðgi, háleitum markmiðum og firru? Og hver hefur vald til að setja fram þessar skilgreiningar?

Listamenn: Anna Hallin, Birgir Sigurðsson, Eygló Harðardóttir, Guðný Kristmannsdóttir, Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Jóhann Ludwig Torfason.

Sýningarstjórar: Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, og Inga Jónsdóttir safnstjóri Listasafns Árnesinga.

Leiðsögn um sýningar Listasafnsins er alla fimmtudaga kl. 12.15-12.45.