Síðasta leiðsögnin um Sköpun bernskunnar

Fimmtudaginn 11. júní, kl. 12.15-12.45, verður boðið upp á síðustu leiðsögnina um Sköpun bernskunnar í Listasafninu, Ketilhúsi, en sýningunni lýkur næstkomandi sunnudag 14. júní. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, safnkennari og sýningarstjóri tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna og einstaka verk.

Þátttakendur í sýningunni eru nemendur leik- og grunnskóla Akureyrar, tíu starfandi myndlistarmenn og Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi.

Þemað er börn og sköpun þeirra. Hugmyndin er að blanda saman list starfandi myndlistarmanna, sem fást við bernskuna í víðum skilningi, og verkum eftir börn og leikföngum þeirra. Stefnt er að því að sýningin verði árviss viðburður með nýjum þátttakendum ár hvert.

Þátttakendur sýningarinnar: Bergþór Morthens og börn hans Vilmundur Emil og Indíana, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hjördís Frímann, Hrönn Einarsdóttir, Ólafur Sveinsson, Rósa Júlíusdóttir og Karl Guðmundsson, Samúel Jóhannsson, Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Erwin van der Werve og börn þeirra Logi og Ylva, Glerárskóli, Oddeyrarskóli, Brekkuskóli, Hlíðarskóli, Naustaskóli, Giljaskóli, Lundarskóli, Síðuskóli, Tröllaborgir, Iðavöllur, Naustatjörn, Kiðagil, Hlíðaból, Hulduheimar, Lundarsel og Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi.

Sýningin stendur til 14. júní og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17, en frá 2. júní kl. 10-17. Aðgangur er ókeypis.