Síðasta opnunarhelgi fyrir framkvæmdir

Sýningum Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur, Sýn í þokunni, og Joan Jonas, Eldur og saga, 1985 lýkur á sunnudaginn. Þá gefst gestum jafnframt tækifæri til að koma í síðasta sinn í núverandi sýningarsali Listasafnsins því í febrúar hefjast framkvæmdir við húsnæðið sem verður opnað að nýju vorið 2018 eftir stórfelldar endurbætur og stækkun. Starfsemin næsta árið mun því aðallega beinast að sýningum í Ketilhúsinu. Spennandi tímar framundan!