Síðasta sýningarhelgi Þórdísar Öldu í Ketilhúsinu

 

Nú er komið að síðustu sýningarhelgi á hinni glæsilegu og áhugaverðu sýningu Þórdísar Öldu Stolnar fjaðrir  í Ketilhúsinu á Akureyri. Þórdís sækir efnivið sinn og hugmyndir  í ,,dótakassa samtímans? með öllum þeim efnum, hlutum, tækjum, tólum og klæðum sem er hið raunverulega, daglega sjónarspil stórs hluta mannkyns.

Við hvetjum alla til að leggja leið sína í Ketilhúsið um helgina og sjá þessa stórbrotnu sýningu.