Síðustu sýningardagar

Síðustu sýningardagar
Frá opnun GraN 2015.

Framundan eru síðustu dagar sýninganna GraN 2015 í Listasafninu og Umgerð í Listasafninu, Ketilhúsinu, en báðum sýningum lýkur næstkomandi sunnudag 13. desember. Fyrstu sýningar ársins 2016 verða opnaðar í Listasafninu 16. janúar þegar Jón Laxdal og Samúel Jóhannsson opnar sýningar.

GraN 2015

GraN 2015 endurspeglar þá fjölbreytni sem er að finna í grafíklist á Norðurlöndum og þann kraft og færni sem býr í norrænum grafíklistamönnum. Að sýningunni stendur GraN sem er hópur grafíklistamanna og áhugamanna um myndlist á Íslandi sem stefnir að því að auka veg grafíklistar, koma á reglulegu sýningarhaldi og útgáfu á efni um grafík. Hópinn mynda Íslensk Grafík, Listasafnið á Akureyri, Akureyrarstofa, Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri og Arsborealis. HÉR má sjá heimasíðu GraN.

Hugsteypan - Umgerð

Á sýningu Hugsteypunnar Umgerð gefur að líta marglaga innsetningu sem unnin er sérstaklega inn í rými Ketilhússins. Í neðra rýminu blandast margvíslegur efniviður við málaða fleti og ljósmyndir í ýmsum formum sem ásamt lýsingu kalla fram ótal mismunandi sjónarhorn. Efra rýmið býður upp á sjónarhorn þess sem stendur fyrir utan og verður fyrir vikið eins konar áhorfendastúka. Á ferð sinni um sýningarsalinn eru áhorfendur hvattir til að fanga áhugaverð sjónarhorn á myndavélar eða síma og gerast þar með virkir þátttakendur í verkinu. Þegar áhorfendur skrásetja upplifun sína og deila í gegnum samfélagsmiðla hafa þeir áhrif á framgang og þróun verksins þar sem myndunum er varpað aftur inn í rýmið jafnóðum. Þannig setja listamennirnir skynjun, hlutverk og stöðu áhorfandans gagnvart listaverkinu í brennidepil. 

Öllum er velkomið að taka þátt í sýningunni með því að deila myndum í gegnum Twitter eða Instagram merktum #umgerd eða senda tölvupóst á umgerd@sharypic.com.