Taktu þátt í Sumarsýningu Listasafnsins

Taktu þátt í Sumarsýningu Listasafnsins
Frá Haustsýningunni 2015.

Listasafnið á Akureyri efnir til sýningar á verkum eftir norðlenska myndlistarmenn, 10. júní - 27. ágúst 2017. Dómnefnd velur úr innsendum verkum listamanna sem búa og/eða starfa á Norðurlandi eða hafa tengingu við svæðið. Umsóknarfrestur er til og með 1. mars næstkomandi. 

Haust/Sumarsýningar voru lengi fastur liður í sýningarhaldi hér á landi og erlendis lifa þær víða enn góðu lífi. Haust/Sumarsýning Listasafnsins á Akureyri er tvíæringur og endurvekur þá góðu hefð að sýna hvað listamenn á svæðinu eru að fást við. Hún verður því fjölbreytt og mun gefa góða innsýn í líflega flóru myndlistar á Akureyri og Norðurlandi.

Sérstakt eyðublað má finna hér að neðan. 

  • Eyðublaðið er einungis rafrænt og þarf ekki að prenta út.
  • Umsækjandi fyllir út grunnupplýsingar og hleður upp 1-3 myndum sem dómnefndin mun fjalla um. Mikilvægt er að myndirnar séu í góðri upplausn sem má nýta í prentaða sýningarskrá og annað kynningarefni. Stærðin er um það bil 150x100 mm (1.772x1329 pixlar) og 300 pt. 
  • Vídeóverk skal senda í gegnum wetransfer.com á netfangið hlynurhallsson@listak.is
  • Stuttur texti skal fylgja þar sem listamaðurinn fjallar um verkin og sjálfan sig. Mjög mikilvægt er að textinn sé vandaður og nothæfur í kynningarefni. Umsækjandi hleður textanum upp sem Word skjali með hnappnum „Almennt um verkin“.
  • Sérstakar upplýsingar um verkin eru færðar inn: nafn, ártal, stærð og tækni.
  • Mynd þarf að fylgja af listamanninum sem verður nýtt í sýningarskrá og annað kynningarefni. Myndin þarf að vera í 300 pt. upplausn.
  • Að síðustu þarf að fylgja texti um viðkomandi listamann, 40-80 orð, og örstutt ferilskrá, 40-80 orð. Ef um tæknilega aðstoð er að ræða er viðkomandi bent á að hafa samband við Hlyn Hallsson, safnstjóra, á netfangið hlynurhallsson@listak.is eða í síma 461 2619.

Hér má nálgast eyðublaðið