Þátttakendur í Sumarsýningu Listasafnsins

Þátttakendur í Sumarsýningu Listasafnsins
Rebekka Kühnis, Skjóldalur, 2016.

Í janúar síðastliðnum auglýsti Listasafnið á Akureyri eftir umsóknum um þátttöku í Sumarsýningu safnsins sem stendur yfir dagana 10. júní - 27. ágúst næstkomandi. Alls bárust umsóknir frá 47 listamönnum og yfir 100 verk, en forsenda umsóknar var að listamenn búi og/eða starfi á Norðurlandi eða hafa tengingu við svæðið. Listasafnið þakkar fyrir allar innsendar umsóknir.

Haust/Sumarsýningar voru lengi fastur liður í sýningarhaldi hér á landi og erlendis lifa þær víða enn góðu lífi. Sumarsýning Listasafnsins endurvekur þá góðu hefð að sýna hvað listamenn á svæðinu eru að fást við. Hún verður því fjölbreytt og mun gefa góða innsýn í líflega flóru myndlistar á Akureyri og Norðurlandi.

Sérstaklega skipuð dómnefnd valdi verk eftir 21 listamann, en hana skipuðu Almar Alfreðsson, vöruhönnuður, Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, Joris Rademaker, myndlistarmaður, Margrét Elísabet Ólafsdóttir, listfræðingur, og Ólöf Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur.

Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru: Aðalsteinn Þórsson, Arnar Ómarsson,  Auður Lóa Guðnadóttir, Auður Ómarsdóttir, Árni Jónsson, Bergþór Morthens, Björg Eiríksdóttir, Brynhildur Kristinsdóttir, Erwin van der Werve, Helga Björg Jónasardóttir, Hertha Richardt Úlfarsdóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir, Jónborg Sigurðardóttir, Jónína Björg Helgadóttir, Karl Guðmundsson, Magnús Helgason, Rebekka Kühnis, Sara Björg Bjarnadóttir, Sigríður Huld Ingvarsdóttir, Snorri Ásmundsson og Svava Þórdís Baldvinsdóttir Júlíusson.

Sýningin var síðast haldin í Listasafninu á Akureyri haustið 2015. Að þessu sinni er bæði árstíminn og sýningarrýmið annað, þ.e. sumar en ekki haust og Ketilhúsið mun hýsa sýninguna sökum framkvæmda í aðalsýningarými Listasafnsins.