Þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu: Stefán Boulter - Handverk er hugmynd

Þriðjudaginn 25. nóvember kl. 17 heldur listmálarinn Stefán Boulter fyrirlestur í Ketilhúsinu undir yfirskriftinni Handverk er hugmynd. Þar mun hann fjalla um sín eigin verk og vekja upp nokkrar áleitnar spurningar um listsköpun en Stefán hefur verið ötull talsmaður þess að sameina aftur handverk og hugmynd í listsköpun. Hann  flokkar verk sín sem ?kitsch? en til að lýsa þeim á auðskiljanlegri hátt kallar hann þau einnig ?ljóðrænt raunsæi?. Stefán nam myndlist í Bandaríkjunum, Ítalíu og Noregi og hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði á Íslandi og erlendis. Hann  kennir við Myndlistaskólann á Akureyri.

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er sá níundi í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Á næstu vikum tala Giorgio Baruchello og Kazuko Kizawa.