Til málamynda: Vilhjálmur Bragason

Til málamynda: Vilhjálmur Bragason
Vilhjálmur Bragason. Mynd: Þröstur Ernir.

Sunnudaginn 2. september kl. 14 verður ljóðalestur í Listasafninu með Vilhjálmi Bragasyni, ljóðskáldi. Vilhjálmur velur sér listaverk í einu af rýmum Listasafnsins undir yfirskriftinni Til málamynda. Í upplestrinum býr hann til nýja tilfinningu, nýja upplifun og nýtt pláss í huga þeirra sem vilja ljá augu og eyru.  

Flutningurinn er hluti af upplestrarröðinni Til málamynda sem fer fram alla sunnudaga kl. 14 í september.

Eftirtalin skáld munu velja sér verk og flytja ljóð:

26. ágúst: Eyþór Gylfason, Karólína Rós Ólafsdóttir
og Sölvi Halldórsson.
2. september: Vilhjálmur Bragason.
9. september: Atli Sigþórsson / Kött Grá Pje.
16. september: Ragnheiður Harpa Leifsdóttir.
23. september: Eyþór Gylfason.
30. september: Ásgeir H. Ingólfsson.

Upplestraröðin hlaut styrk úr menningarsjóði Akureyrar.