Útboð á rekstri kaffihúss í Listasafninu

Listasafnið á Akureyri leitar eftir aðila/aðilum til að annast rekstur á kaffihúsi í Listasafninu. Góð aðstaða er fyrir spennandi kaffihús á jarðhæð Listasafnsins. Kaffihúsið er sjálfstæð eining á góðum stað í Listagilinu, en jafnframt mikilvægur hluti af Listasafninu. 

Útboðsgögn verða afhent frá og með miðvikudeginum 8. maí 2019. Vinsamlegast óskið eftir gögnum í gegnum netfangið umsarekstur@akureyri.is 

Tilboð skulu hafa borist til Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 600 Akureyri eigi síðar en kl. 11 miðvikudaginn 29. maí 2019.

Listasafnið á Akureyri er í eigu Akureyrarbæjar og starfar í þágu almennings. Í ágúst 2018 tók safnið í notkun nýja sýningarsali og kaffihús eftir miklar endurbætur á húsnæði þess. Listasafnið óskar eftir, með útboði þessu, áhugasömum rekstraraðilum til að taka að sér veitingarekstur í kaffihúsi á jarðhæð Listasafnsins, til þriggja ára, með möguleika á endurnýjun til annarra þriggja ára. Kaffihúsið verður sjálfstæð eining á góðum stað í Listagilinu en jafnframt mikilvægur hluti af Listasafninu. Kaffihúsinu er ætlað að sinna fjölbreyttum hópi almennra gesta og einnig gestum Listasafnsins. Rekstraraðila er ætlað að byggja upp nútímalegt kaffihús með metnaðarfulla veitingastefnu sem rímar við starfsemi safnsins og höfðar jafnframt til breiðs hóps gesta, viðskiptavina, ferðamanna og íbúa bæjarins. 

Kaffihúsið er staðsett á jarðhæð Listasafnsins við innganginn með stórum glugga sem vísar í suður út í Listagilið. Þar er pláss fyrir 30-40 manns og auk þess verður hægt að sitja úti á verönd á skjólgóðum stað á sumrin.